Á Skagaströnd er hægt að velja úr fjölbreyttum gistimöguleikum.
Hægt er að skoða nánar með því að ýta á myndirnar.

Tjaldsvæðið er á skjólsælum og rólegum stað efst á Hólabraut.
Svæðið er í fallegu umhverfi og nýtur skjóls til norðurs og austurs af lágum klettahólum sem kallaðir eru Hólaberg. 

Salthús Gistiheimili býður upp á fjórtán, vel útbúin herbergi. Hvert herbergi býður upp á baðherbergi með sturtu, salerni og vaski.

Skíðaskálinn á Skagaströnd er frábær fyrir litla og meðal stóra hópa sem vilja gistingu í faðmi Spákonufells.
Í skálanum er gistipláss fyrir 16 manns.
Skálinn er opinn allt árið um kring

Sumarhús Snorrabergs er staðsett rétt fyrir ofan Skagaströnd þar sem útsýni er úr húsinu yfir bæinn og út á Húnaflóa.

Stuðlaberg á Skagaströnd er sumarhús staðsett við tjaldsvæðið og þar er bæði sjávar- og fjallasýn.

Sólheimar
Falleg íbúð í rólegum litlum bæ með útsýni til sjávar og fjalla.

Ocean Cape Cabins Iceland 
Laufás er staðsett á kyrrlátum stað við Spákonufellshöfða en þar hægt að leigja smáhús með fjallasýn.

Akur er lítið hús staðsett við rólega íbúagötu á Skagaströnd.

Njóttu friðsællar dvöl í Skagaströnd með þessu notalega sérherbergi sem er staðsett í lítilli og rólegri skrifstofubyggingu. Tilvalið fyrir einstaklinga, pör eða fjarvinnufólk sem leitar að rólegum stað í einu af heillandi strandþorpum Íslands.